Verkefnastjórar heilsueflingar, Ásgerður Guðmundsdóttir (LEB) og Margrét Regína Grétarsdóttir (ÍSÍ) eru að vinna í því að uppfæra og breyta fyrirkomulagi handbókarinnar "Hreyfing í boði á landsvísu" sem er inn á vefnum www.bjartlif.is
Til þess að hún megi verða skilvirk er mikilvægt að setja inn alla þá vefslóða sem innihalda hreyfiúrræði í sveitarfélaginu.
Um leið og dagskrá breytist inn á ykkar heimasíðu þá uppfærast allar upplýsingar inn á bjartlif.is samtímis.
Ef þið eruð ekki með vefslóð inná heimasíðu eða Facebook síðu, þá hvetjum við ykkur til að nútímavæða stundaskrána og útbúa vefslóð eða Facebooksíðu svo fólk geti nálgast hreyfidagskrána á rafrænu formi.
Með fyrirframþökk og kærri kveðju,
Ásgerður og Margrét Regína