Umsækjendur í allar deildir skólans skulu hafa lokið stúdentsprófi eða jafngildu prófi. Skólanum er þó heimilt að veita inngöngu í skólann umsækjendum sem búa yfir þekkingu og reynslu sem telst fullnægjandi undirbúningur fyrir nám við skólann. Rektor ákveður samkvæmt umsögn inntökunefndar hvaða nemendum skal veitt innganga í skólann á þessum forsendum.
Vinsamlegast fyllið út umsókn hér fyrir neðan. Allir umsækjendur eru boðaðir í viðtal. Opið er fyrir umsóknir á Vorönn 2024 sem hefst í janúar.
Fyrir frekari upplýsingar um umsóknarferlið hafið samband í síma: 444-3300 eða á kvikmyndaskoli@kvikmyndaskoli.is.