Gengið til friðar Logo
  • Gengið til friðar

    Saga herstöðvabaráttunnar 1946-2006
  • Bókin „Gengið til friðar“ kom út seint á síðasta ári í samstarfi Samtaka hernaðarandstæðinga og bókaútgáfunnar Skruddu. Þar er rakin saga herstöðvabaráttunnar um sex áratuga skeið.

    Herstöðvamálið var stærsta pólitíska deiluefnið á Íslandi á seinni hluta tuttugustu aldar. Það gat af sér öflugar fjöldahreyfingar og ótal fjölmenn og minnisstæð mótmæli, þar á meðal Keflavíkurgöngur sem haldnar voru á árunum 1960 til 1991.

    Í þessari efnismiklu og ríkulega myndskreyttu bók fjallar hópur höfunda um málið frá mörgum hliðum, þar sem einnig er fjallað um birtingarmyndir herstöðvabaráttunnar í bókmenntum, tónlist, myndlist og kvikmyndum svo dæmi séu tekin. Árni Hjartarson er ritstjóri verksins.

    Hægt er að panta bókina hér á sérstöku tilboðsverði, 8.000 kr.

  • Should be Empty: