• Bókanir á vikulegum padel tímum í Sporthúsinu Reykjanesbæ

  • Leiðbeiningar

    Veldu tímasetningu til þess að bóka fastan vikulegan tíma á padel velli í dagatölunum hér að neðan. Athugaðu að einungis er hægt að velja eina tímasetningu í hverju dagatali, og að það eru aðskilin dagatöl fyrir 45 mínútna og 90 mínútna tíma.

    Völlurinn er tvíliðaleiksvöllur fyrir fjóra leikmenn.

    Dagsetningin sem valin er í dagatalinu er upphafsdagsetning samnings. Ef valinn er t.d. 20.ágúst kl 10:30 þá er það fyrsti padel tíminn sem er bókaður, og sami tími er bókaður vikulega framvegis.

     

    Samningar

    Eftir að þessu formi er skilað færðu samstundis sendan Taktikal samning sem nauðsynlegt er að undirrita rafrænt. Einn samningur er sendur fyrir hverja valda tímasetningu. Ef samningur er ekki undirritaður innan 30 mínútna er tíminn afbókaður og er þá aftur merktur laus til bókunar. Eftir að samningur hefur verið undirritaður færðu sendan QR kóða í tölvupósti sem þú notar til þess að komast inn í bygginguna.

    Mögulegt er að velja annað hvort 12 mánaða bindingu, þar sem hver 45 mínútna tími kostar 7000kr, eða ótímabundinn samning þar sem hver 45 mínútna tími kostar 8000kr. 

     

    Greiðslumátar

    Vinsamlegast sláðu inn þína persónulegu kennitölu í þetta form, svo hægt sé að senda þér samninginn til rafrænnar undirritunar.

    Ef þú vilt skrá fyrirtæki sem greiðanda þá fyllir þú inn upplýsingar um fyrirtækið í Taktikal samningnum.

    Hægt er að velja um að fá senda kröfu í heimabanka mánaðarlega, eða beingreiðslu með skuldfærslu á bankareikning. 

     

    Skilmálar binditíma

    Ótímabundinn samningur: Uppsögn tekur gildi um næstu mánaðarmót. Uppsagnarfrestur er samkvæmt skilmálum samnings einn mánuður. Það þýðir að ef samningi er sagt upp t.d. 17.september þá tekur uppsögnin gildi 1.október og viðkomandi greiðir þá fyrir októbermánuð, þar til uppsagnarfrestur endar 31.október.


    Samningur bundinn í 12 mánuði: Ef uppsögn berst áður en 12 mánaða tímabil er liðið þá endar samningur að 12 mánaða tímabili loknu. Ef uppsögn berst eftir að 12 mánaða tímabil er liðið þá tekur uppsögn gildi um næstu mánaðarmót. Uppsagnarfrestur er samkvæmt skilmálum samnings einn mánuður. Það þýðir að ef samningi er sagt upp t.d. 17.september þá tekur uppsögnin gildi 1.október og viðkomandi greiðir þá fyrir októbermánuð, þar til uppsagnarfrestur endar 31.október.

     

  • Format: 000-0000.
  • Tegund samnings*
  • Veldu upphafsdagsetningu samnings í dagatölunum

  • Völlur 1 - Einfaldur tími - 45 mín
  • Völlur 1 - Tvöfaldur tími - 90 mín
  • Should be Empty: