Logn er lítið og einfalt tæki sem spilar róandi hljóð í bakgrunni á meðan þú heyrir áfram í umhverfinu. Við viljum þróa það með fólki sem þekkir eyrnasuð af eigin raun.
Við leitum að fólki í tvennt:
- Viðtöl sem miða að því að kynnast betur þeim hópi sem lifir með eyrnasuði.
- Notendaprófanir. Lítill hópur fær frumútgáfu af Logn til reynslu á fyrri hluta árs 2027.
Við höfum samband þegar skráning hefst og þú ákveður þá hvort þú vilt vera með.